Stóra upplestrarkeppnin 2024
Stóra upplestrarkeppni grunnskólanna á sunnanverðum Vestfjörðum verður haldin í Bíldudalskirkju fimmtudaginn 18. apríl kl. 17.
Skrifað: 16. apríl 2024
Markmiðið með keppninni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Upplesararnir eru allir nemendur í 7. bekkjum Bíldudalsskóla, Patreksskóla og Tálknafjarðarskóla. Þátttakendur leggja sig alla fram við undirbúninginn svo upplesturinn verði sem bestur.
Höfundar ársins eru tveir og upplesararnir keppa í þremur umferðum. Í fyrstu umferð verður lesið upp úr skáldsögunni Hetja eftir Björk Jakobsdóttur og í annarri umferð verða lesin upp ljóð eftir Braga Valdimar Skúlason. Í þriðju og síðustu umferð lesa nemendur upp ljóð að eigin vali.
Tónlistarskólinn verður með atriði og mun Foreldrafélag Bíldudalsskóla bjóða upp á veitingar að keppni lokinni. Öll eru hjartanlega velkomin, þá sérstaklega aðstandendur upplesaranna.