Skert aðgengi um Aðalstræti við Stekkagil
Vegna vinnu við bráðavarnir við Stekkagil má búast við skertu aðgengi um Aðalstræti við ráðhúsið á næstu vikum. Þá gæti þurft að þrengja götuna eða loka henni í stuttan tíma á meðan vinnu stendur. Vegfarendur eru beðnir um að sína tillitssemi og fara um Strandgötu eins og kostur er. Ef loka þarf alveg fyrir umferð í lengri tíma verður það auglýst sérstaklega.
Skrifað: 26. apríl 2024